Hvað er betra en að setjast niður og segja börnunum sögur fyrir svefninn?
Það er endalaust til af sögum.
Þær þurfa ekki að vera einhver meistaraverk til að krökkum finnist þau góð skemmtun. Yfirleitt er það tíminn sem fer í að segja þær og kossinn fyrir háttinn sem skiptir meira máli.
Ég hef sagt margar sögur síðan ég varð mamma.
Pabbi þeirra hefur heldur ekki látið sitt eftir lyggja, hann les heilan helling.
Krakkarnir okkar hlusta af innlifun á næstum hvað sem er.
Það eru samt spunasögurnar sem mér finst skemmtilegastar.
Þegar ég byrja að segja sögu og veit ekkert hvert hún er að fara eða hvernig hún endar.
Ég reyni að hafa þær skemmtilegar en lauma nokkrum fróðleiksmolum inn á milli ef ég kem þeim að.
Svo eru það klassísk ævintýri.
Allir hafa heyrt Grimms-ævintýrin, Hans og Grétu, Rauðhettu, Kiðlingarnir 7 og svo mætti lengi telja.
Þetta eru góð og gild ævintýri sem yfirlett hafa einhvern góðann boðskap ofinn inn í söguþráðinn hvort sem hann er augljós eða ekki.
Stundum finnst hins vegar að þessi ævintýri höfði ekki endilega til allra, þau eru, eins og ungviðið sem hlustar á þau, börn síns tíma.
Það er eðli ævintýra og sagna almennt að taka breytingum með tíð og tíma, þau eiga að þróast og breytast í lifandi munnmælahefð þannig lifa þau áfram.
Ég ætla nú samt ekki að fara að endurskrifa Grimmsævintýrasagnabálkinn í heild sinni eða kollvarpa þekktum hefðum og hlutverkum í þeim, en ég hafði samt hugsað mér að umbreyta þeim eitthvað.
Og svo eru nokkrar sögur sem fljúga af og til í gegnum kollinn á mér þegar kemur að sögum fyrir háttinn, fremstar í flokki eru þar sögurnar af Litlu Mús og Stóru Mús... þær hafa löngum verið ofarlega á óskalistanum hjá mér og mínum krökkum.
Ég segi þessar spunasögur einstaka sinnum en pabbi sagði mér af ævintýrum þeirra félaga og mér skylst að hann hafi fengið að frétt af þeim frá ömmu sinni. Ekki hafa þær þó að mér vitandi verið gefnar út enda aldrei sagðar tvisvar eins.
Hér ætla ég að koma einhverjum af þessum sögum á blað (eða allavegana á tölvuskjá) og vona að fleiri geti notið.
Koss fyrir háttinn :)